Til minningar um bestu vini mína

Elsku Þruma mín þín er sárt saknað.

Elsku Þruma mín ég sakna þín sárt, ég hugsa til þín á hverjum degi.
Þú varst æðislegur dráttarhundur og æðislegur félagi, þú varst alltaf til staðar fyrir mig þegar ég þurfti á vin að halda.
Þú eignaðist hvolpana þína 28 ágúst 2009, þú varst besta mamma í heimi, stóðst þig með prýði. Þú varst einstaklega ljúf og góð í alla staði. Ég vil þakka þér fyrir allar okkar stundir og sérstaklega fyrir gullmolan þinn sem þú gafst mér hana Storm.
Ég mun alltaf sakna þín og hugsa til þín, þú varst besti vinur sem ég átti.
Sakna þín ástin mín.


Elsku Snotra mín þín er sárt saknað.

Snotra mín þú varst besti vinur minn og besti dráttarhundur sem ég hef átt, betri vin er ekki hægt að finna þó víða væri leitað.
Þú varst einstök í alla staði.
Þú elskaðir að leika þér með bolta, ef þú hefðir ráðið þá hefðum við verið alla daga í boltaleik.
Þér fannst gaman að draga og stóðst þig mjög vel.
Þitt nýja áhugamál var að fara læra að smala og náðum við bara að fara í einn tíma, þú stóðst þig mjög vel í þvi eins og öllu sem þú tókst þér fyrir hendur.
Það tók mig 1 og hálft ár að fá þig að vilja að synda í vatni, en eftir að þú kveiktir á perunni hvað það var gaman þá var ekki aftur snúið.
 máttir ekki sjá smá sprænu þá varstu farin út í.
Þú elskaðir að buslu um og varst eins og lítill flóðhestur.
Snotra mín þú áttir mig og ég þig, heimurinn er ekki eins án þín og ég sakna þín á hverjum degi, en ég veit að við munum verða aftur saman.
Þakka þér fyrir þær stundir sem við áttum saman.

Flettingar í dag: 19
Gestir í dag: 8
Flettingar í gær: 37
Gestir í gær: 7
Samtals flettingar: 153932
Samtals gestir: 37674
Tölur uppfærðar: 16.5.2012 23:56:13

Eyberg Ice ræktun

Nafn:

Auður Eyberg Helgadóttir og Þorsteinn Einar

Farsími:

8692303

MSN netfang:

audurh@hi.is

Afmælisdagur:

19.07.79

Heimilisfang:

Garður

Staðsetning:

Iceland

Heimasími:

4227358

Um:

Elska hunda og menn :)

Tenglar